Aflamarki fyrir 2015/2016 hefur verið úthlutað

Aflamarki fyrir 2015/2016 hefur verið úthlutað

2 September 2015

Fiskistofa hefur úthlutað aflamarki fyrir fiskveiðiárið 2015/2016 sem hófst 1. september. Að þessu sinni var úthlutað 368.500 tonnum í þorskígildum talið. Breyting á milli ára samsvarar 1.500 þorskígildistonna aukningu.

 Mest er úthlutað til Reykjavíkur eða 12,4% heildarúthlutunar, næstmest til Grindavíkur eða 11,4% og þar á eftir koma Vestmannaeyjar með 9,9%. Nánari upplýsingar um úthlutun eftir fyrirtækjum, heimahöfn, útgerðarflokkum o.fl. má nálgast á vef Fiskistofu.