Íslandsdagar í Bremerhaven

Íslandsdagar í Bremerhaven

27 ágúst 2018

Búist er við allt að 40 þúsund manns á Íslandsdaga í Bremerhaven sem haldnir verða 29. ágúst til 2. september. Íslandsstofa sér um að skipuleggja viðburði sem eru hluti af viðamikilli dagskrá sem borgaryfirvöld og fyrirtæki í viðskiptum við Ísland standa fyrir.

Mikil og góð samskipti hafa verið á milli Íslands og Þýskalands á sviði sjávarútvegs síðustu áratugi, einkum í Bremerhaven og nágrenni. Það eru bæjar- og hafnaryfirvöld Í Bremerhaven og hagsmunaaðilar, bæði íslensk fyrirtæki og þýsk, sem standa að hátíðinni sem haldin er í tilefni af 100 ára fullveldisafmæli Íslands. Íslandsstofa og Iceland Responsible Fisheries koma að skipulagi nokkurra dagskrárliða, einkum til að kynna sjávarfang og ábyrgar fiskveiðar, en einnig fer fram kynning á Íslandi sem áfangastað ferðamanna og íslenska hestinum. 

Dagskrá Íslandsdaganna tekur mið af þessum sterku tengslum í sjávarútvegi. Íslenskur landsliðskokkur til margra ára, Fannar Vernharðsson, mun kynna íslenska fiskinn, bæði með sýnikennslu á sviði í Seefischkochstudio, sem og á matreiðslunámskeiði. Þá mun fulltrúi frá Íslandsstofu kynna leyndarmálið á bak við gæði íslenska fisksins á námsstefnu (seminar) um sjávarútveg og ábyrgar fiskveiðar. Þar að auki verður fjölmiðlafólki boðið til kynningar og að þiggja veitingar í Eldhúsinu, litlu húsi sem Íslandsstofa hefur notað í kynningarstarfi á erlendri grund. Eimskip sér um að flytja húsið á staðinn, en það hefur ferðast víða um lönd. Sendiherra Íslands í Þýskalandi, Martin Eyjólfsson, mun halda erindi við opnunar hátíðarinnar miðvikudaginn 29. ágúst.

Markmiðin með Íslandsdögunum eru að auka vitund um gæði íslenskra sjávarafurða og ábyrgar fiskveiðar, treysta tengsl við lykilhagsmunaaðila sem kaupa íslenskan fisk í Þýskalandi og að kynna Ísland sem áfangastað ferðamanna. Dagskráin er áhugaverð og er reiknað með miklum fjölda á viðburðina og að hún nái athygli fjölmiðla. Fiskur verður líka í boði á fjölda veitingastaða í Bremerhaven og eru vonir bundnar við íslenskur fiski festi sig í sessi á matseðlum veitingastaða í borginni og víðar í Þýskalandi. 

Markmið Iceland Responsible Fisheries er að treysta stöðu íslenskra sjávarafurða á erlendum mörkuðum og styrkja ímynd Íslands sem upprunalands sjávarafurða þar sem stundaðar eru ábyrgar fiskveiðar. Þýskaland er mikilvægur markaður fyrir íslenskar sjávarafurðir og þar erum við að leggja megináherslu á að kynna sjálfbærar veiðar og vottun, og eru karfi, ufsi og þorskur þær tegundir sem skipta mestu máli fyrir okkur.