Þorsk-, ýsu- og ufsaveiðar Íslendinga endurvottaðar
Óháð vottunarnefnd á vegum írsku vottunarstofunnar Global Trust/SAI Global hefur endurvottað veiðar á þorski, ýsu og ufsa á Íslandsmiðum samkvæmt íslenska staðlinumi um ábyrgar fiskveiðar (Iceland Responsible Fisheries Management Standard - IFRM, útgáfa 2.0). Vottunin staðfestir að veiðunum er stjórnað á ábyrgan hátt í samræmi við alþjóðlega viðurkenndar kröfur. Vottunarskírteinið gildir í 5 á með árlegum viðhaldsvottunum.
Staðallinn sem vottað er eftir byggir efnislega á samþykktum Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO). Óháð mat vottunarstofunnar var unnið eftir ISO17065 faggiltu kerfi Global Trust og veitir áreiðanlega vottun þriðja aðila á ábyrgri fiskveiðistjórnun.
Úttektin fól í sér yfirgripsmikla skoðun á íslenska fiskveiðistjórnunarkerfinu, þar á meðal stjórnunarreglum, aflamarkskerfinu og mati á stofnstærð. Niðurstaða úr mati vottunarnefndar var að stjórnkerfið og aflareglur fælu í sér varúðarnálgun sem stuðlar að ábyrgum veiðum og góðri umgengni um vistkerfið.
Aflamark þessara tegunda á yfirstandandi fiskveiðiári er:
Þorskur: 272.411 tonn
Ýsa: 41.823 tonn
Ufsi: 80.588 tonn
Útgefnar vottunarskýrslur eru aðgengilegar á ensku HÉR .
Nánari upplýsingar um vottunina veitir:
Finnur Garðarsson, framkvæmdastjóri hjá Ábyrgum fiskveiðum ses. finnur@irff.is,