Veiðar á íslenskri sumargotssíld, löngu og keilu IRF vottaðar eftir staðli Ábyrgra fiskveiða
![Veiðar á íslenskri sumargotssíld, löngu og keilu IRF vottaðar eftir staðli Ábyrgra fiskveiða](/media/1/islandsstofa-keila5277.jpg?w=320)
Þann 23. ágúst sl. staðfesti vottunarnefnd SAI Global fullnaðarvottun veiða eftirfarandi fiskistofna innan íslenskrar lögsögu eftir úttekt samkvæmt fiskveiðistjórnunarstaðli Ábyrgra fiskveiða (IRF):
- Löngu (Molva molva)
- Keilu (Brosme brosme)
- Íslenskri sumargotssíld (Clupea harengus)
Vottunarnefnd SAI Global samþykkti tillögu úttektarteymisins um fullnaðarvottun eftir ítarlega skoðun á vottunarskýrslum fyrir ofangreindar veiðar. Úttekt veiðanna tók 12 mánuði og fól í sér heimsóknir úttektarteymis, visindalegt mat á ástandi veiðistofnanna ásamt úttekt á stjórnun veiðanna. Vottunarskýrslurnar voru rýndar af óháðum vísindamönnum (peer reviwers).
IRFM staðallinn sem vottað er eftir byggir efnislega á samþykktum Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO) og er ISO faggildur. Óháð mat vottunarstofunnar var unnið eftir ISO17065 faggiltu kerfi Global Trust/SAI Global og veitir trúverðuga vottun þriðja aðila á ábyrgri fiskveiðistjórnun.
Vottunarskýrslan fyrir íslenska sumargotssíld er aðgengileg hér
Vorttunarskýrsla fyrir löngu er aðgengileg hér
Vorttunarskýrsla fyrir keilu er aðgengileg hér
Nánari upplýsingar um vottunina veitir Finnur Garðarsson, finnur@irff.is